sunnudagur, mars 05, 2006

DVD og Sudoku

Dagur er að kveldi kominn og dagur 9 í veikindafríi. Ég er búin þessa síðastliðnu daga að sjá jafnmargar DVD myndir og samtals í heilt ár þar á undan. Búin að lesa gat á Moggann og Fréttablaðið, nokkuð sem ég hef ekki haft tíma til að gera lengi og ég hef gert allar þær Sudokuþrautir sem ég hef komist í í þessum sömu blöðum. Ég er búin að stofna nýtt blogg og hef farið vel yfir tölvupóstinn minn. Maðurinn minn, þessi elska, hefur eldað handa mér mat 9 daga í röð og keypt handa mér vínber og fært mér í rúmið. Ég er með símann, farsímann og MP3 spilarann á náttborðinu og fartölvuna uppi í rúmi. Þyrfti bara að koma mér upp fjarkennslubúnað hér í svefnherberginu og þá þyrfti ég kannski bara ekkert að mæta aftur í vinnuna...

So Far So Good...

laugardagur, mars 04, 2006

Búin að tengja.

Jupp... Er búin að átta mig á tenglasysteminu. Get þá dundað mér við að koma þessu smám saman í horf. Reyndar er einmitt þetta atriði mun einfaldara á blog.central. Það er bara þetta með að það virkar aldrei neitt þar...

föstudagur, mars 03, 2006

Önnuhátíð á Vetrarhátíð



Það virðist virka vel að setja myndir inn á þetta blogg... :-) Strax eitthvað sem virkar betur en á blog.central....

Er reyndar ekki búin að finna út helming möguleika á stillingum, en það hlýtur að koma. Er ekki búin að sjá hvernig ég set inn tenglalista þó ég sé búin að fara í gegnum allt á SETTINGS. Er eflaust eitthvað blind í dag.

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Nýtt blogg... :-)

Nú er komið að því! Ég held að ég gefist endanlega upp á blog.central og skrifi hér eftir á blogger.com. Vonast til að það sé oftar hægt að framkvæma það sem mann langar til, þ.e. setja inn tengla og myndir o.s.frv. Veit ekki alveg hvað málið hefur verið á blog.central. En það er sjaldnar en hitt að hægt sé að gera nokkurn skapaðan hlut annan en að skrifa...

Jæja ætla ekki að skrifa meira í bili. Þarf aðeins að finna út úr því hvernig ég set síðuna upp...